Afmælisveislan - myndir og uppskriftir

Eins og kom fram í síðustu færslu frá mér, þá varð ég fertug um daginn. Já, fertug. 
Í fyrsta sinn á ævinni, fannst mér ég vera farin að eldast og í fyrsta sinn upplifði ég þá tilfinningu að mér fannst erfitt að verða árinu eldri, sem er skrítið, því að á sama tíma er ég svo þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að lifa eitt ár í viðbót, fagna einu árinu enn. 


                           Happy Thirty-ten               

Ég hélt veislu. 

Ég ákvað að bjóða þeim sem mér standa næst að koma og fagna með mér, og ég er svo þakklát fyrir það að fólkið mitt gaf sér tíma til að koma og fagna með mér. Og ég sá að ég á fullt af fólki í kringum mig, sönnum og góðum vinum og ættingjum. 

En aftur að veislunni :) Ég hélt semsagt smá kaffiboð á laugardaginn fyrir fólkið mitt og svo var ég með smá partý um kvöldið. Í öllu fjörinu gleymdi ég samt eiginlega að taka myndir, svo að þær fáu myndir sem ég tók, læt ég fljóta með hér í þessum pósti.


Kökuna bakaði ég sjálf. En þetta er bara súkkulaðiterta með smjörkremi og fondant. Blómin eru gerfiblóm sem ég keypti í IKEA.

Ég bauð upp á tertur, heita rétti og fleira að deginum til og þar á meðal var ég með heitann rétt sem ég henti saman. Ég er svolítið þannig að ég á erfitt með að fylgja uppskriftum þegar ég er að elda eða baka, svo að það er misjafnt hvernig réttirnir heppnast sem ég geri ;) En heiti rétturinn var ágætur, þrátt fyrir að ég hafi ekki haft neina uppskrift, en ég skrifaði hana niður og skelli henni því hér inn ásamt uppskrift af tortilla vefjum sem ég bauð upp á um kvöldið. Ég var með tvær tegundir af vefjum. Annarsvegar vefjur með reyktum laxi og hins vegar vefjur með skinku, papriku og tabasco sósu. Það er ótrúlega einfalt að útbúa þær og því er tilvalið að skella í vefjur ef gesti ber að. En eins og ég sagði, þá steingleymdi ég að taka myndir, svo að þær eru ekki til, hvorki af heita réttinum eða vefjunum. En hér koma uppskriftirnar:


Brauðréttur 
Hráefni
1 fínt samlokubrauð 
1 c.a. 20 sneiðar af skinku, skornar í litla bita
1 dós grænn aspas 
1 dós sveppir 
1 dós aspas-Campell´ssúpa 
1 dós sveppasmurostur
3 dl rjómi
Rifinn ostur 

Aðferð:
1. Rífið brauðið í eldfast mót, og takið skorpuna frá. Hellið safanum af bæði aspasnum og sveppunum yfir brauðið. 
2. Hrærið saman, campell´s súpunni, rjómanum og smurostinum. 
3. Dreifið aspasinum, sveppunum og skinkunni yfir brauðið
4.Hellið blöndunni yfir allt saman og dreifið rifna ostinum yfir.
5. Bakið við 180°c þar til osturinn hefur brúnast.

Tortilla vefjur með skinku og papriku
Hráefni
500 gr papriku smurostur
¼ smátt skorinn blaðlaukur
20 sneiðar skinka (smátt skorin)
10 dropar Tabasco sósa
1 rauð paprika (smátt söxuð)

Aðferð:
1. Hrærið öllu saman
2. Smyrjið á tortillabökur, rúllið upp.
3. Skerið í hæfilega stóra bita.
Borið fram kalt.

Tortilla vefjur með reyktum laxi
Hráefni:
Reyktur lax (niðurskorinn)
20 msk. Rjómaost með pipar
10 blöð Iceberg kál

Aðferð:
1. Smyrjið bökuna með rjómaostinum
2. Setjið kálblöðin á og svo að lokum laxinn.
3. vefjið bökunum upp og skerið í hæfilega stóra bita.
Borið fram kalt.


Veisluborðið í kaffiboðinu að deginum til.

Veitingarnar sem voru um kvöldið. 

Ummæli

Vinsælar færslur